top of page

Skilnaður & sambúðarslit

 Saman höfum við áratugareynslu af því að leiða viðskiptavini okkar og umbjóðendur í gegnum það ferli sem þarf að eiga sér stað við skilnað eða sambúðarslit, þ.á.m. gerð fjárskiptasamninga, samninga um forsjá og umgengni og annað tilfallandi. Á þessum stóru en jafnframt erfiðu tímamótum er mikilvægt að njóta traustrar lögfræðiráðgjafar, enda verður fjárskiptasamningi ekki breytt nema þá með dómi. Mikilvægt er því að vandað sér til verka með þeim hætti að lagður sé traustur grundvöllur að samningum sem marka réttláta og sanngjarna niðurstöðu sem hægt er að byggja á til framtíðar.

Við höfum aðstoðað hundruði einstaklinga við gerð farsælla fjárskiptasamninga, en einnig veitt ráðgjöf í tengslum við ógildingu slíkra samninga þegar þess hefur verið þörf og þá fyrir dómstólum. 

Flestir sem hafa leitað til okkar gera það á grundvelli meðmæla frá öðrum sem hafa notið ráðgjafar okkar.

Hafðu samband:

Atli Már Ingólfsson - atli@landlogmen.is, s. 866-0073

Hildur Sólveig Pétursdóttir - hildur@landlogmenn.is, s. 698-9800

Jóna Vestfjörð Hannesdóttir - jonavestfjord@landlogmenn.is, s. 860-2315

Lögskilnaður.is
LAND lögmenn

Hlíðasmára 9, 201 Kópavogi

bottom of page