Erfðaréttur
Við tökum að okkur hvers kyns málefni tengd erfðarétti og skipti dánarbúa, hvort heldur um er að ræða einkaskipti dánarbúa eða opinber skipti á dánarbúum. Lögmenn stofunnar hafa yfirgripsmikla þekkingu á ágreiningsefnum sem upp kunna að koma við skipti dánarbúa.
Erfðamál verða flóknari eftir því sem fjölskyldumynstur verða fjölbreytilegri og því er skynsamlegt að gera ráðstafanir í tengslum við erfðamálefni. T.d. ef hjón eiga ekki sameiginlega niðja geta þau gert með sér erfðaskrá sem kveður á um rétt til setu í óskiptu búi. Ef engin erfðaskrá er gerð, geta stjúpniðjar krafist skipta á dánarbúi og maki á þá ekki rétt á setu í óskiptu búi.
Við aðstoðum um gerð erfðaskrá en erfðaskrár eru formbundnir skriflegir gerningar um hinsta vilja arfláta. Erfðaskrá getur verið metin ógild ef ekki er vandað til verka og skjalið fullnægir ekki öllum formkröfum sem gerðar eru til erfðaskráa.
Hafa samband:
Atli Már Ingólfsson - atli@landlogmen.is, s. 866-0073
Hildur Sólveig Pétursdóttir - hildur@landlogmenn.is, s. 698-9800
Jóna Vestfjörð Hannesdóttir - jonavestfjord@landlogmenn.is, s. 860-2315