top of page

Kaupmálar & sambúðarsamningar

Við aðstoðum hjón, sambúðarfólk og tilvonandi hjón við alla samningagerð og höfum langa reynslu af gerð kaupmála, eigna- og skiptasamninga. Eins aðstoðum við fólk við að ljúka fjárskiptum.

Lögum samkvæmt geta einungis hjón eða hjónaefni gert með sér kaupmála. Með því að ganga í hjónaband verða eignir aðila að hjúskapareignum, nema annað sé þá sérstaklega tilgreint í kaupmála. Skynsamlegt er að hjón eða hjónaefni geri með sér kaupmála, sér í lagi ef mikill munur er á eignastöðu aðila. 

Kaupmálar: Kaupmálar eru formbundnir löggerningar og skiptir því máli að vandað sé til verka, en brestur á formskilyrðum getur hæglega leitt til þess að kaupmáli hafi ekki gildi seinna meir ef á reynir.

Sambúðarsamningar:  Á Íslandi hefur færst í vöxt að fólk kjósi frekar að búa í skráðri sambúð en að ganga í hjónaband. Ástæðurnar geta verið margvíslegar, en ein þeirra kann að vera sú að komast hjá réttaráhrifum sem fylgja hjúskap og hjúskaparlögum, t.a.m. helmingaskiptareglu hjúskaparlaga, rétt til setu í óskiptu búi eða erfðaréttindum sem hjón njóta. Ólíkt því sem gildir um hjón, eru engin sérlög til staðar um fjármál óvígðs sambúðarfólks eða skiptingu eigna við slit sambúðar. Þrátt fyrir framangreint, hafa þróast ákveðnar meginreglur í dómaframkvæmd sem litið er til þegar sambúð lýkur. Þar skipta máli atriði á borð við lengd sambúðar, eignamyndun á sambúðartima, fjárhagsleg samstaða og hvort að aðilar eigi sameiginleg börn. Við sambúðarslit geta auðveldlega komið upp flókin álitaefni - þá sérstaklega þegar um langa sambúð er um að ræða. Til þess að koma í veg fyrir ágreining ef til sambúðarslita kemur, er sambúðarfólki unnt að gera með sér sambúðarsamning þar sem fjármálum og réttindum er skýrt fyrir komið. Slíkir samningar hafa fullt lagalegt gildi og hefur gerð þeirra aukist verulega á síðustu árum. Við gerð slíkra samninga, skiptir máli að vandað sé til verka, annars er hætta á að ákvæðum samnings sé vikið til hliðar með dómi, ef á reynir.

Hafa samband:

Atli Már Ingólfsson - atli@landlogmen.is, s. 866-0073

Hildur Sólveig Pétursdóttirhildur@landlogmenn.is, s. 698-9800

Jóna Vestfjörð Hannesdóttirjonavestfjord@landlogmenn.is, s. 860-2315

Lögskilnaður.is
LAND lögmenn

Hlíðasmára 9, 201 Kópavogi

bottom of page